Ég heiti Sólveig og er 25 ára kennari. Ég læt þessa stuttu lýsingu duga! :)

kveðja

Sólveig



<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31




Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

Tuesday, February 24, 2009
Brosið

Ég fékk æðislega spurningu í dag frá nemanda og eins og svo oft kom hún efni tímans ekkert við. Nemandi horfði á mig og spurði af mikilli einlægni: "Er ekki erfitt að vera í vinnu þar sem þú þarft alltaf að brosa?" Ég kannast að vísu ekki við þá miklu kvöð í mínu starfi að "þurfa" að brosa og tek ég frekar þeim stundum fagnandi þegar hægt er að hlæja og brosa með nemendum mínum og stundum að þeim ;). Í mínum huga var svarið við spurningunni nokkuð augljóst, enda ekki alltaf tími til að íhuga viðbrögð í kennslu: "Ja, allavega, auðveldara vera í svolleiðis vinnu en þar sem ég þyrfti alltaf að vera í fýlu."


Posted at 11:07 pm by solvreyn
Athugasemdir -tjáðu þig!

Monday, February 02, 2009
Bæn og hreyfing

Það er yndislegt að mæta aftur í boot camp eftir vikuhlé vegna veikinda og geta aftur farið að sprikla og svitna í góðum félagsskap. Það er heldur ekki verra að bæði þjálfarar og æfingarfélagar tóku eftir því að ég hvarf úr hópnum... og spurðu: "Hvar ertu búin að vera?" og í framhaldi af því: "Þín var saknað!" -það yljar hjartaræturnar og án efa hvetur mann til að halda áfram að vera dugleg að mæta. Boot camp er málið!

Eins mikið og mig langaði á æfingu í síðustu viku þá tók það örlítið á að koma sér aftur af stað í dag. Það var pínu kósý tilhugsun að fara beint heim eftir vinnu og setja tærnar uppí loft í stað þess að mæta á æfingu. Eins og sést hér að ofan sé ég auðvitað alls ekki eftir því að hafa dröslað mér að stað og sé að koma æfingunum aftur í rútínu eftir vikuhlé.

En ég var að hugsa um það í dag að það gilda álíka lögmál um bæn og hreyfingu. Þ.e.

"Pray when you want to. Pray when you don´t want to. Pray until you want to pray."

aka

Æfðu þegar þig langar til þess. Æfðu þegar þig langar ekki til þess. Haltu áfram að æfa þangað til að þig langar til þess.

Já, þetta var speki dagsins ;)


Posted at 8:04 pm by solvreyn
Comments (1)

Friday, January 09, 2009
Nýtt ár, nýjir tímar

Nýtt ár, nýjir tímar, nýr dagur, nýtt upphaf.

Vinnan er hafin aftur á nýju ári og er ég búin að vinna hörðum höndum við að koma reglu aftur á líf mitt. Fyrsta daginn mætti ég til vinnu eftir tveggja tíma svefn. Ég mæli ekki með svo illa sofnum kennara. Þolinmæðin er talsvert minni á slíkum dögum. Þrátt fyrir að jólafríið hafi verið gott með frábærum boðum, vinum, félögum, spilum, mat og svefntíma þegar mér hentaði er líka gott að komast aftur í rútínu.

Í upphafi nýs árs finn ég líka alltaf fiðring í maganum að byrja eitthvað nýtt, prófa eitthvað nýtt og upplifa nýja hluti. Í fyrra fékk ég m.a. þá hugmynd í upphafi árs að mæta á gítarnámskeið og árið þar áður mætti ég í boot camp. Ég er mjög sátt með þær ákvarðanir enda báðar enn í fullu gildi. Hvað ég tek mér fyrir hendur á þessu ári er óljóst en það verður allavega eitthvað sem mér finnst skemmtilegt.

Margs er að minnast frá liðnu ári. Stundir með vinum, félögum og ættingjum, ferð erlendis, ferðir innanlands, göngur og hreyfing standa mér efst í huga... og svo uþb þrjár til fjórar góðar ræður. Má þar nefna luggage og silence diskana hans Guðna Más og svo mjög ólíkar ræður Gulla og Írisar í ksf.

Svo er það auðvitað þetta klassíska, þegar litið er til baka, að ég er alltaf að læra meira um lífið og á lífið og það gerir maður svo lengi sem ég lifi. Sumt hefur þó gengið hægar að læra en annað :) Það má gera mistök og sum oftar en önnur... en that´s life :)

Já, á nýju ári er ég wide awake. Það er ekki hægt annað en að rísa úr rekkju og horfa björtum augum á framtíðina. Vöknuð!


Posted at 10:24 am by solvreyn
Comments (4)

Saturday, December 13, 2008
Amen!!

Það hlaut að koma að þessu. Sökum matarræðis og annarar óskynsemi hefur gengið hægt að að hrista sumarkílóin af sér. Núna korteri fyrir jól er ég komin þangað sem ég var í vor. Ég ætla njóta þess núna í korter áður en ég leggst í jólakílóin :)

Posted at 3:47 pm by solvreyn
Comments (4)

Friday, December 05, 2008
Hæfileikar

Stundum væri rosalega þægilegt að ég þyrfti ekki að æfa mig til að vera sæmilega góð í að prjóna. Það væri alveg frábær hæfileiki að geta horft á eitthvað og það kæmi fullkomið út. Ég er byrjuð á nýjum prjónaverkefnum og fullkomleikinn er... einhverstaðar annar staðar en hjá mér :) En æfingin skapar víst meistarann og eftir að hafa byrjað tvisvar lítur þetta svosem sæmilega út... en gengur ferlega hægt.

En talandi um hæfileika þá sá ég fyrir þónokkuð mörgum árum myndina "Fenómon" með Athony Hopkins (John Travolta) og fannst "hæfileiki" hans nokkuð athyglisverður. Mig langaði stundum mikið í þennan hæfileika að gæta snert bækur og þá kynni ég innihaldið... og þyrfti þar af leiðandi ekkert að hafa meira fyrir lestrinum. Þessi draumur átti þó helst við þegar kom að því að lesa einhverja skólabók sem ég hafði engan áhuga á. Dagdraumurinn náði svo langt að ég man eftir að hafa pælt að það væri hægt að skrúfa fyrir "the superpower" þegar ég væri að lesa spennandi skáldsögur. Það væri ferlegur bömmer að fá aldrei að njóta þess að lesa góða skáldsögu... Ég hefði enn ekkert á móti þessum "superpowers" en tel þó aðra hæfileika vera betri, raunverulegari og eftirsóknarverðari en þessi :)

Mig minnir líka að hæfileiki Travolta hafi komið frá æxlum í höfði... Mér fannst það ekki eins og góður díll


Posted at 1:29 am by solvreyn
Comments (3)

Monday, December 01, 2008
Gleðibrunnurinn

Í ljósi tíðarands hjá landsmönnum fannst mér tilvalið að rifja upp þetta lag.

Já, verum hress eins og Hemmi Gunni ;)


Posted at 3:12 pm by solvreyn
Athugasemdir -tjáðu þig!

Thursday, November 27, 2008
New hairstyle

Klippigellan mín missti sig í gleðinni í dag. Ég fór inn í dag með maintance hugarfar. Það þyrfti jú að laga hárið eitthvað til og svona. Ég fór út með nýja klippingu þ.e. aðra hárlínu og nýjan háralit. Það skiptir þó mestu máli er að ég er alveg sátt við breytingarnar og það var víst kominn tími á að gera eitthvað nýtt í hárdæminu. Svo ég samþykkti allt sem klippigellan sagði með já og amen! :)

Hver veit nema ég skelli inn mynd af Þessum breytingum síðar fyrir úti á landi liðið og Svíakelluna ;)


Posted at 8:23 pm by solvreyn
Comments (2)

Monday, November 17, 2008
Gullmoli

Í gær var dagur íslenskrar tungu svo í tilefni gærdagsins fjallaði ég um ljóð í morgun. Ég sagði þeim frá Jónasi Hallgrímssyni og sýndi þeim ljóðavefinn sem inniheldur ljóð með hinum ýmsu skáldum.

Meðal annars sýni ég þeim ljóð eftir ömmubróður minn hann Jón úr Vör. Á þeirri síðu var mynd af mávi og svo ljóð hans við hliðiná sem heitir vetrarmávur. Allavega í framhaldi af því átti ég þetta skemmtilega samtal við einn nemandann:

  • nemandi: "Er þetta frændi þinn?" (og bendir á fuglinn)
  • ég: "nei, þetta er fugl! Maðurinn sem samdi ljóðið var frændi minn. Hann er reyndar dáinn núna. Þetta er hann" (sýndi þeim mynd af Jóni úr Vör sem ég fann á netinu)
  • nemandi: "Ó, breyttist hann svo í fugl og dó?"
  • ég: "hahaha... nei, hann var aldrei fugl. Í mesta lagi furðufugl"
  • nemandi: "Hvernig fugl er það? Er það eins og mávur?"

já, þau eru yndisleg


Posted at 2:14 pm by solvreyn
Athugasemdir -tjáðu þig!

Friday, November 14, 2008
Bloggleysi

Eitthvað hefur borið á bloggleysi hjá mér undanfarið og nokkur loforð verið gefin um að bæta úr þeim málum.

Helstu fréttir þennan daginn er þó lítil frænka sem kom í heiminn í morgun og er það hann Guðlaugur frændi minn sem á töluvert í skvísunni.

Guðlaugur by Sólveig.

Reyndar voru þær tvær í fjölskyldunni sem voru vanfærar eða vanhæfar eins og Guðlaugur vildi kalla ástandið. Bjarni frændi á líka von á einu bara í síðustu viku en það gengur eitthvað hægt að koma því út. Já, það er ljómandi ágætt þegar bræður hafa samráð um barneignir... það er allvega kenningin.

Lísa og Bjarni by Sólveig.

Aðrar og almennari pælingar síðar.

Over and out


Posted at 2:34 pm by solvreyn
Athugasemdir -tjáðu þig!

Wednesday, October 08, 2008
Crap, crap... kreppa!

Hingað til hefur orðið "kreppa" aðeins átt við þegar ég hef átt að halda út einhverri æfingu eða endurminninguna þegar það var kallað ofan á eftir mér í skólasundi: "Sólveig, kreppa ökklann!" og átti það við bringusund.

Já, eitthvað hafa aðstæður breyst undanfarið... og meira mál núna að reyna að ná aukinni færni í kreppusundi en bringusundi þó við virðumst nú öll vera föst í sama drullu pyttinum.

Ég er nú kannski í sæmilegum málum miðað við marga þar sem ég á ekkert nema bíl og tölvu... en ég fékk enga síður illt í augun og hjartað þegar ég sá hækkunina á afborgun af bílnum á milli mánaðarmóta.

Ég er allavega alvarlega farin að hugsa um að lesa einungis slúðurfréttir um fræga fólkið og aðra hluti sem mér gæti ekki verið meira sama um. Hver eignaðist barn með hverjum, hver er búinn að láta mynda barnið sitt, hver gleymdi að fara í litun og plokkun, hver gleymdi að fara í nærbrækur og fleiri spennandi hluti. Hinn möguleikinn er að gerast sjálfsþurftarbóndi uppi á hálendi.

Já, það var talsvert skemmtilegra þegar þjóðin fylgdist grimmt með gengi íslenska handboltliðins í Peking frekar en þessum krónurússíbana sem virðist vera í frjálsu falli.

Ég er þó afar fegin að það er ekki ég sem þarf að sitja sveitt og vansvefta við að redda okkur útúr þessum vandræðum... Ég vona þetta fari eitthvað að ganga upp hjá þeim... eða einhver finni töfrasprota.


Posted at 4:10 pm by solvreyn
Comments (4)

Next Page