Entry: Crap, crap... kreppa! Wednesday, October 08, 2008



Hingað til hefur orðið "kreppa" aðeins átt við þegar ég hef átt að halda út einhverri æfingu eða endurminninguna þegar það var kallað ofan á eftir mér í skólasundi: "Sólveig, kreppa ökklann!" og átti það við bringusund.

Já, eitthvað hafa aðstæður breyst undanfarið... og meira mál núna að reyna að ná aukinni færni í kreppusundi en bringusundi þó við virðumst nú öll vera föst í sama drullu pyttinum.

Ég er nú kannski í sæmilegum málum miðað við marga þar sem ég á ekkert nema bíl og tölvu... en ég fékk enga síður illt í augun og hjartað þegar ég sá hækkunina á afborgun af bílnum á milli mánaðarmóta.

Ég er allavega alvarlega farin að hugsa um að lesa einungis slúðurfréttir um fræga fólkið og aðra hluti sem mér gæti ekki verið meira sama um. Hver eignaðist barn með hverjum, hver er búinn að láta mynda barnið sitt, hver gleymdi að fara í litun og plokkun, hver gleymdi að fara í nærbrækur og fleiri spennandi hluti. Hinn möguleikinn er að gerast sjálfsþurftarbóndi uppi á hálendi.

Já, það var talsvert skemmtilegra þegar þjóðin fylgdist grimmt með gengi íslenska handboltliðins í Peking frekar en þessum krónurússíbana sem virðist vera í frjálsu falli.

Ég er þó afar fegin að það er ekki ég sem þarf að sitja sveitt og vansvefta við að redda okkur útúr þessum vandræðum... Ég vona þetta fari eitthvað að ganga upp hjá þeim... eða einhver finni töfrasprota.

   4 comments

Sólveig
October 25, 2008   05:25 PM PDT
 
coming up soon!
Heiðdís
October 20, 2008   04:03 PM PDT
 
mér finnst að þú eigir að blogga til að þetta krepputal sé ekki efst!!!
Sólveig
October 9, 2008   12:40 PM PDT
 
Já, hænur, kindur, kýr, svín, hestar og kók og kannski netsamband líka... og allir sáttir.
Þóra Jenny
October 9, 2008   10:35 AM PDT
 
Bílalánið mitt hefur lítið sem ekkert hækkað - eða það er, afborganirnar hafa ekkert hækkað á milli mánaðamóta hjá mér. Vona að það sé ástand sem er komið til að vera.

Ég er alveg með þér í því að gerast sjálfsþurftarbóndi uppi á hálendi. En getum við þá ræktað kók?

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments