|
Stundum væri rosalega þægilegt að ég þyrfti ekki að æfa mig til að vera sæmilega góð í að prjóna. Það væri alveg frábær hæfileiki að geta horft á eitthvað og það kæmi fullkomið út. Ég er byrjuð á nýjum prjónaverkefnum og fullkomleikinn er... einhverstaðar annar staðar en hjá mér :) En æfingin skapar víst meistarann og eftir að hafa byrjað tvisvar lítur þetta svosem sæmilega út... en gengur ferlega hægt. En talandi um hæfileika þá sá ég fyrir þónokkuð mörgum árum myndina "Fenómon" með Athony Hopkins (John Travolta) og fannst "hæfileiki" hans nokkuð athyglisverður. Mig langaði stundum mikið í þennan hæfileika að gæta snert bækur og þá kynni ég innihaldið... og þyrfti þar af leiðandi ekkert að hafa meira fyrir lestrinum. Þessi draumur átti þó helst við þegar kom að því að lesa einhverja skólabók sem ég hafði engan áhuga á. Dagdraumurinn náði svo langt að ég man eftir að hafa pælt að það væri hægt að skrúfa fyrir "the superpower" þegar ég væri að lesa spennandi skáldsögur. Það væri ferlegur bömmer að fá aldrei að njóta þess að lesa góða skáldsögu... Ég hefði enn ekkert á móti þessum "superpowers" en tel þó aðra hæfileika vera betri, raunverulegari og eftirsóknarverðari en þessi :) Mig minnir líka að hæfileiki Travolta hafi komið frá æxlum í höfði... Mér fannst það ekki eins og góður díll |
| Elín December 10, 2008 06:16 PM PST Hæ skvís. Bara a kvitta fyrir mig, ég kíki alltaf reglulega hingað inn. | ||
| Sólveig December 5, 2008 02:30 PM PST Nú er ég bara að reyna bögglast við að gera vettlinga... Ég er næstum komin uppað þumli með annan :) | ||
| Heiðdís December 5, 2008 08:42 AM PST Hvað er verið að prjóna ?? | ||
| Leave a Comment: |