Entry: Nýtt ár, nýjir tímar Friday, January 09, 2009



Nýtt ár, nýjir tímar, nýr dagur, nýtt upphaf.

Vinnan er hafin aftur á nýju ári og er ég búin að vinna hörðum höndum við að koma reglu aftur á líf mitt. Fyrsta daginn mætti ég til vinnu eftir tveggja tíma svefn. Ég mæli ekki með svo illa sofnum kennara. Þolinmæðin er talsvert minni á slíkum dögum. Þrátt fyrir að jólafríið hafi verið gott með frábærum boðum, vinum, félögum, spilum, mat og svefntíma þegar mér hentaði er líka gott að komast aftur í rútínu.

Í upphafi nýs árs finn ég líka alltaf fiðring í maganum að byrja eitthvað nýtt, prófa eitthvað nýtt og upplifa nýja hluti. Í fyrra fékk ég m.a. þá hugmynd í upphafi árs að mæta á gítarnámskeið og árið þar áður mætti ég í boot camp. Ég er mjög sátt með þær ákvarðanir enda báðar enn í fullu gildi. Hvað ég tek mér fyrir hendur á þessu ári er óljóst en það verður allavega eitthvað sem mér finnst skemmtilegt.

Margs er að minnast frá liðnu ári. Stundir með vinum, félögum og ættingjum, ferð erlendis, ferðir innanlands, göngur og hreyfing standa mér efst í huga... og svo uþb þrjár til fjórar góðar ræður. Má þar nefna luggage og silence diskana hans Guðna Más og svo mjög ólíkar ræður Gulla og Írisar í ksf.

Svo er það auðvitað þetta klassíska, þegar litið er til baka, að ég er alltaf að læra meira um lífið og á lífið og það gerir maður svo lengi sem ég lifi. Sumt hefur þó gengið hægar að læra en annað :) Það má gera mistök og sum oftar en önnur... en that´s life :)

Já, á nýju ári er ég wide awake. Það er ekki hægt annað en að rísa úr rekkju og horfa björtum augum á framtíðina. Vöknuð!

   4 comments

Guðmundur Karl
January 12, 2009   12:06 AM PST
 
Jú klárlega. Þetta verður gott ár ef við viljum að þetta verði gott ár og allavega byrjar það nokkuð vel :-)
Sólveig
January 11, 2009   03:04 PM PST
 
Já, verður maður ekki að ákveða snemma að þetta verði gott ár. -svona fyrir utan þjóðfélagsmálin :)
Guðmundur Karl
January 11, 2009   01:56 PM PST
 
Góður :-)
Heiðdís
January 9, 2009   03:46 PM PST
 
það er aldeilis jolly peppy bloggfærsla hjá minni....ánægð með það. endilega vertu nú dugleg að blogga um allt þetta nýja sem þú ætlar að taka þér fyrir hendur...já og þetta gamla bara líka :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments