|
Ég fékk æðislega spurningu í dag frá nemanda og eins og svo oft kom hún efni tímans ekkert við. Nemandi horfði á mig og spurði af mikilli einlægni: "Er ekki erfitt að vera í vinnu þar sem þú þarft alltaf að brosa?" Ég kannast að vísu ekki við þá miklu kvöð í mínu starfi að "þurfa" að brosa og tek ég frekar þeim stundum fagnandi þegar hægt er að hlæja og brosa með nemendum mínum og stundum að þeim ;). Í mínum huga var svarið við spurningunni nokkuð augljóst, enda ekki alltaf tími til að íhuga viðbrögð í kennslu: "Ja, allavega, auðveldara vera í svolleiðis vinnu en þar sem ég þyrfti alltaf að vera í fýlu." |
| Leave a Comment: |